Erfiðir dagar núna
28 05 2008Góðan og blessaðan daginn, það eru sko erfiðir dagar hjá mér núna. Ég ákvað að prófa eitthvað hreinsidagaprógram frá Aloa Vera sem eru 9 dagar, mér finnst það geggjað erfitt. Ég fæ svo mikinn höfuðverk. En þetta stillir af magann og hreinsar líkamann innan frá.
En mér finnst þetta ekkert spennandi, ég er á þriðja degi núna, en 2 fyrstu dagarnir eru erfiðastir er mér sagt. Vinkonur mínar eru líka í þessu og það renna af þeim kílóin, en ekki hjá mér :-( Meira að segja þegar ég byrjaði hafði ég aðeins bætt á mig og þarf ég að skrá það samviskusamlega inn. En ég veit ekki hvort ég held þennan kúr út. Held að mér henti bara að gera áfram eins og ég hef verið að gera. Hreyfingarprógram Ágústu Johnson og svo huga að mataræðinu með DDV bak við eyrað. Í þokkabót þá er ég eitthvað voðalega lítil í mér þessa dagana, en það kemur allt með tímanum.
Vona að ykkur gangi vel, bestu kveðjur!! Djúsígella
Ummæli : 3 ummæli »
Flokkar : Uncategorized