Halló halló, þetta er nú búinn að vera frekar skrítinn dagur í dag, Birkir sonur minn fór frá mér í gærkvöldi og flaug til Svíþjóðar í morgun með afa sínum og ætlar að vera þar í sumar þangað til að ég fer og sæki hann, en ég er búin að vera hálf vængbrotin. Hugga mig að vísu við það að hann hefur bæði gott og gaman að þessu og þroskast í leiðinni. En ég fer til Svíþjóðar dagana 1.-12. ágúst og tek Fjölni elsta drenginn minn með mér sem er 15 ára og ætla að flýja af landi brott yfir verslunarmannahelgina, veit að hann langar á þjóðhátíð í Eyjum, en ekki núna hmhm. Ég fór að vísu með honum eitt kvöld í fyrra og það var svaka gaman.
Annars gengur bara ágætlega hjá mér að hugsa um mataræðið fyrir utan pínu svindl í gærkvöldi en ég bauð afa þeirra og frænku í Gæs með öllu tilheyrandi og desert í eftirrétt. Ég verð grasekkja um helgina þar sem maðurinn minn er að fara upp á Arnarvatnsheiði að veiða, fer í kvöld og kemur heim á sunnudaginn.
En ég stefni á notalega helgi með strákunum mínum og ætla jafnvel að kíkja í Töfragarðinn á Stokkseyri.
Bið að heilsa í bili með baráttukveðjum
Djúsígella