Sælar stelpur, ég ætla nú að fara að ykkar ráðum og hafa DDV bak við eyrað þó að ég fari ekki alveg eftir því en ég var 82,2 kg á vigtinni minni í morgun. Ég er ákveðin í því að halda áfram og byrja bara upp á nýtt þegar ég kem heim frá Svíþjóð.
En að vísu verður mjög mikið um að vera hjá mér þá, ég stend í skilnaði og er að flytja eftir að ég kem heim frá Svíþjóð, íbúðin sem ég fæ verður ekki tilbúin fyrr en ég kem að utan. Þess vegna fer allt á fulla ferð þegar ég kem heim.
En endilega kíkið inn á síðuna hjá mér áfram því að mig vantar virkilega hvatningu og pepp. Er í einhverri leiðindarlægð núna. En ætla að njóta þess að fara til Svíþjóðar með unglinginn minn og ná í miðlunginn. Fara í tívolí, versla og bara SLAPPA AF.
Fer til Svíþjóðar á miðvikudagsmorgun og ég kíki kanski inn á síðuna eitthvað á meðan ég verð úti.
Bestu kveðjur til ykkar allra og hafið það gott og gangið hægt um gleðinnar dyr um verslunarmannahelgina. En ég mæli eindregið með ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM!!
Baráttukveðjur Djúsígella.