Átið í dag

10 07 2007

Hæ aftur, þá er ég komin úr grillpartýi fjölskyldunnar í bústaðnum hjá tengdó, það var æðislegt fjör, fórum út á vatnið í bát, skipst á að fara með krakkana og það var farið að veiða og börnin léku sér í góða veðrinu við vatnið og köstuðu önglunum í von um að það myndi bíta á og hundarnir syntu í vatninu.  BARA GAMAN. Engin veiði í þetta skiptið.

En átið í dag var eftirfarandi:

þriðjudagurinn 10. júlí

MM = Ristað brauð með osti + sultu, pera, vatn og 1 tsk ólívuolía

HM = Grænmeti, hálf brauðsneið m/osti, 1 egg + vatn

Vatn, kaffi og ferskur ananas í sólinni milli mála

KM = rúml. 400 g grænmeti heima áður en ég fór í grillið, 1/2 bökuð kartafla frekar stór m/pínu smjöri, grillkjöt + grænmeti + vatn, kaffi. 

Svo ætla ég núna að fá mér jarðaber og bláber út á ab-mjólk + 1 tsk ólívuolíu (sýnist ég eiga það eftir)

Fróðlegt að vita hvernig fer á morgun, læt vita.

KV. Djúsígella





Ég er hér enn… hæ hæ!!

10 07 2007

Hæ hæ, í sól og sumaryl !!!!  Vá hvað veðrið er búið að vera yndislegt síðustu daga.  Ég er sko búin að njóta blíðunnar í botn, fara í sund og fara í fjöruferð og og og…..

Svo var ég auðvitað að byrja í nýrri vinnu og þetta tekur allt sinn tíma og í nógu að snúast.

 TAKK ÆÐISLEGA FYRIR KOMMENTIN!! ÞIÐ ERUÐ ALVEG FRÁBÆRAR!!!!

Eins og ég hef sagt áður þá er þetta svo hvetjandi að vita af ykkur þarna úti og vita að þið eruð að fylgjast með mér, TAKK, TAKK….  Alltaf gott að fá svona ábendingar.  Ég skal reyna eins og ég get að bæta mig, en stundum er maður í einhverjum skítareddingum.  En annars langar mig að spyrja,, má maður ekki fá sér hrísgrjón á hverjum degi sem extra?? eða hvað, er það bara skipt út fyrir ávöxt??  Ég hélt að ég mætti það.

En þá er komið að því að gera grein fyrir átinu síðustu daga.

Sunnudagurinn 8.júlí

MM = R. brauð með osti + 1 tsk sulta, 1 tsk ólívuolía, appelsína + vatn

HM = 85 g kjúklingur, + blandað grænmeti og sallat, smá sósa m/majonsesi + hvítlauksdufti  /2 tsk. 1 ristuð brauðsneið með smyrju og hvítlauksdufti, vatn að drekka.

Miðdegishressing = pera + ís í boxi (:-(

KM=  Borðaði á Hafinu Bláa, fiskiþrenna, lítil kartafla, grænmeti (kláraði svo grænmetisskammtinn minn eftir að ég kom heim.)  Vatn og aftur vatn.

Mánudagurinn 9.júlí

MM = Ristað brauð með osti, epli, vatn.

1 kaffibolli + vatn + appelsína milli mála

HM = Skyr.is vanillu, grænmeti, brauð með smyrju, gúrku og tómötum + VATN

KM = lasagne, hrísgrjón og 1 lítið snittubrauð (var boðin í mat, skammtaði mér lítið á diskinn) + 400 g grænmeti.

VATN + pera

Vona að þetta sé nokkurn veginn í lagi.  En ég er ekki búin að prenta ennþá út skráningarblaðið en það er vigtun á morgun og það verður spennandi að sjá hvað gerist.  Ég ætla að muna eftir að taka blöð á morgun.

Gangi ykkur vel og ég kíki á ykkur.

Kv. Djúsígella