Ég er komin heim!!!

19 07 2007

Hæ hæ hæ,,, nú er ég komin heim, er búin að vera í fríi síðan á föstudaginn og viti menn, eiginlega líka á danska og ég veit að það er eitthvað komið til baka aftur, en ég byrja á fullu í dag.  Ég var í útilegu, fórum á Arnarstapa um helgina og svo færðum við okkur yfir á Grundarfjörð á sunnudaginn og svo kom smá klikkerí í bílinn og við urðum að gista eina nótt í Borgarnesi og komum heim í gærkvöldi.

Það var alveg geggjað veður og maður er bara orðinn sólbrúnn og fínn.  En verst var að ég fór stóra beygju frá þeim danska þegar líða tók á helgina og fékk mér áfengi og mat og hugsaði ekkert um matarskammtana mína.  En núna er ég komin heim og þá er bara haldið áfram og ekkert múður með það.  Dugleg að drekka vatn og halda mig við skammtana mína.  Ég get þetta vel, svo nú er bara að bretta upp ermarnar.

Takk fyrir innlitið stelpur, ég kíki á ykkur.

Kv. Djúsígella.


Actions

Information

2 responses

19 07 2007
Berglind Elva

go girl – það er bara rísa aftur upp þegar maður dettur í það og þú getur það sko alveg ;)

bara gott mál ;)

20 07 2007
Dídí

Allir falla af og til, þá er bara að standa upp aftur og gera betur. :)

Skrá ummæli