Kem og fer – stopult sumarblogg

24 07 2007

Hæ hæ, nú er ég búin að vera heima og að heiman fram og til baka, fór í tvö yndisleg brúðkaup á laugardaginn og lá svo bara í leti hérna heima í gær og gerði ekkert, nema að setja í þvottavél.

Er alveg að gefast upp á DDV í bili, er svo mikið á þvælingi og mér finnst það svo erfitt.

Er að fara til Eyja á morgun og verð fram á sunnudag.  Kem þá heim að þvo og undirbúa mig fyrir Svíþjóðarferðina mína.

Er komin með 2 kg upp.  Ekki nógu gott.  En mig langar ekki að gefast alveg upp.  Ég hef þetta nú bak við eyrað en fer ekki alveg eftir þessu.  Verst er það þegar maður lætur það eftir sér að fá sér í glas..

Vona að þið hafið það gott og að ykkur gangi vel.

Bestu kveðjur Djúsígella jó jó


Actions

Information

3 responses

24 07 2007
Berglind Elva

Þú byrjar bara öflugri aftur þegar hægist um ;)

24 07 2007
Dídí

Þú ættir kannski að pæla í að þótt þú farir ekki 100% eftir þessu þá forðast helstu bomburnar, t.d. rjómakökur, nammi, sykurgos og þannig. Líka að reyna að halda þig við 60 g brauð á dag.

Mamma er að borða með DDV sem grunn en er ekki að vigta neitt spes og hún er að léttast.

En auðvitað kemurðu bara fílefld til baka í lok sumars!

Gangi þér vel og skemmtu þér vel á þvælingnum.

27 07 2007
Heidi

Vona að þú komir fílelfd í haust. Ekki gefast upp.

Skrá ummæli