Þá er það Svíþjóð 1.-12.ágúst

30 07 2007

Sælar stelpur, ég ætla nú að fara að ykkar ráðum og hafa DDV bak við eyrað þó að ég fari ekki alveg eftir því en ég var 82,2 kg á vigtinni minni í morgun.  Ég er ákveðin í því að halda áfram og byrja bara upp á nýtt þegar ég kem heim frá Svíþjóð.

En að vísu verður mjög mikið um að vera hjá mér þá, ég stend í skilnaði og er að flytja eftir að ég kem heim frá Svíþjóð, íbúðin sem ég fæ verður ekki tilbúin fyrr en ég kem að utan. Þess vegna fer allt á fulla ferð þegar ég kem heim.

En endilega kíkið inn á síðuna hjá mér áfram því að mig vantar virkilega hvatningu og pepp.  Er í einhverri leiðindarlægð núna.  En ætla að njóta þess að fara til Svíþjóðar með unglinginn minn og ná í miðlunginn.  Fara í tívolí, versla og bara SLAPPA AF.

Fer til Svíþjóðar á miðvikudagsmorgun og ég kíki kanski inn á síðuna eitthvað á meðan ég verð úti.

Bestu kveðjur til ykkar allra og hafið það gott og gangið hægt um gleðinnar dyr um verslunarmannahelgina.  En ég mæli eindregið með ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM!!

Baráttukveðjur Djúsígella.