Jæja þá er ég komin heim frá Svíþjóð og byrjaði að vinna í dag og byrjaði með yngstu drengina í aðlögun á leikskólanum sem ég er að fara að vinna í. Er byrjuð að pakka niður á fullu og stefni á flutninga um helgina.
Átakið byrjar að fullum krafti aftur eftir helgina. Ekki veitir af því ég verð að byrja nánast upp á nýtt.
En við erum búin að hafa það bara gott í fríinu og það er allt komið á fullan snúning, nóg að gera framundan.
Gangi ykkur allt í haginn og takk fyrir innlitið, en ég veit að ég þarf virkilega að fá hvatningu frá ykkur til að bretta upp ermarnar og byrja upp á nýtt.
Kv. Djúsígella (sem líður ekkert of vel)