Góðan og blessaðan daginn!!!!!!

14 08 2007

Jæja þá er ég komin heim frá Svíþjóð og byrjaði að vinna í dag og byrjaði með yngstu drengina í aðlögun á leikskólanum sem ég er að fara að vinna í.  Er byrjuð að pakka niður á fullu og stefni á flutninga um helgina.

Átakið byrjar að fullum krafti aftur eftir helgina.  Ekki veitir af því ég verð að byrja nánast upp á nýtt.

En við erum búin að hafa það bara gott í fríinu og það er allt komið á fullan snúning, nóg að gera framundan.

Gangi ykkur allt í haginn og takk fyrir innlitið, en ég veit að ég þarf virkilega að fá hvatningu frá ykkur til að bretta upp ermarnar og byrja upp á nýtt.

Kv. Djúsígella (sem líður ekkert of vel)


Actions

Information

8 responses

14 08 2007
Heidi

Þú getur þetta skvís :) Ekki svekkja þig á því sem liðið er heldur bara horfa fram á veginn full bjartsýni.

15 08 2007
Dídí

Ég sendi þér baráttukveðjur! :)

15 08 2007
Sara

Baráttukveðjur frá mér , þú getur þetta !! ég bætti þér inn í tengla á síðuna mína, endilega láttu mig vita ef ég er með þig í vitlausum flokki ;)

21 08 2007
Dídí

*söngl* Ertu þá farin? Ertu þá farin frá mér? Hvar ertu núna, hvert liggur þín leið? *söngl*

28 08 2007
Sigga Júlla /Bláklukkan

Baráttukveðjur frá mér líka….fylgist með þér….

23 09 2007
superbarbie

Baráttukveðjur til þín, ég fylgist grannt með þér .. :)

http://www.superbarbie.wordpress.com/

:) *huggles*

29 09 2007
superbarbie

Hæhæ… hvar ertu stelpa? Er að bíða eftir meira bloggi! Kvarda

30 09 2007
Gerður

Hva ertu bara alveg hætt að blogga???
Farðu nú að setja inn nýjar fréttir :)

Skrá ummæli