Góðan daginn, nú erum við að rísa upp aftur eftir erfiða flensu. Ég og strákarnir lögðumst í bælið með 40 stiga hita, ekkert smá leiðinlegt og Aron minn var veikur í 10 daga. En nú erum við að byrja af krafti að mæta í vinnu og skóla þannig að þetta fer að verða komið á rétt ról.
Birkir páskaunginn minn er 12 ára í dag og verður svaka bekkjarpartý heima hjá bekkjarsystur hans þar sem þau ætla að halda saman upp á afmælin sín, en Anna María á líka 12 ára afmæli í dag.
Átakið gengur, og vitiði bara hvað, ég hef verið ótrúlega dugleg að taka MRL æfingar heima. Þ.e. ég á spólu með Ágústu Johnson með æfingum fyrir maga, rass og læri. Þetta kemur allt og það er um að gera að vera dugleg að drekka vatn.
Gangi ykkur öllum vel. Kv. Djúsígella
Ferlegar þessar pestir sem hafa herjað á fólk. En nú er að vora og pestirnar víkja……vonandi!
Já um að gera að vera duglegur að hreyfa sig og drekka vatn.