Nú er helgin framundan og vonandi næ ég að hvíla mig sem mest og best. Við erum búin að vera mjög slöpp og þreytt alla þessa viku og ég hef ekki staðið mig vel í hreyfingunni og matardagbókinni. Ég er ekkert farin að skrá það sem ég borða ennþá, og ég fór bara tvisvar í vikunni í MRL æfingarnar mínar. En að vísu fór ég 3 út að hjóla í smá stund. Vigtin stendur í stað og það er betra en að hún fari upp á við.
Stefnan er að komast í gírinn, klára að ná þessu sleni úr sér um helgina. Fara í barnaafmæli á sunnudaginn og gera MRL æfingar á hverjum degi. Ég finn bara hvað það er gott.
Bestu kveðjur og góða helgi.
Vonandi er þetta allt að koma hjá þér. Gleðilegt sumar!