Erfiðir dagar núna

28 05 2008

Góðan og blessaðan daginn, það eru sko erfiðir dagar hjá mér núna.  Ég ákvað að prófa eitthvað hreinsidagaprógram frá Aloa Vera sem eru 9 dagar, mér finnst það geggjað erfitt.  Ég fæ svo mikinn höfuðverk.  En þetta stillir af magann og hreinsar líkamann innan frá. 

En mér finnst þetta ekkert spennandi, ég er á þriðja degi núna, en 2 fyrstu dagarnir eru erfiðastir er mér sagt.  Vinkonur mínar eru líka í þessu og það renna af þeim kílóin, en ekki hjá mér :-(    Meira að segja þegar ég byrjaði hafði ég aðeins bætt á mig og þarf ég að skrá það samviskusamlega inn.  En ég veit ekki hvort ég held þennan kúr út.  Held að mér henti bara að gera áfram eins og ég hef verið að gera.  Hreyfingarprógram Ágústu Johnson og svo huga að mataræðinu með DDV bak við eyrað.  Í þokkabót þá er ég eitthvað voðalega lítil í mér þessa dagana, en það kemur allt með  tímanum.

Vona að ykkur gangi vel, bestu kveðjur!! Djúsígella





Það er komið sumar!!!

22 05 2008

Jæja það er komið sumar, sólin farin að skína, grasið orðið grænt og bara yndislegt veður.  Ég er farin að nota hjólið mitt og við hjólum orðið alltaf í vinnuna og skólann, ég og synir mínir.  Okkur finnst það alveg frábært og við förum líka stundum í hjólreiðatúra á kvöldin eða eftir vinnu.

Ég hef ekki verið dugleg að skrá það sem ég borða.  En ég drekk alltaf amk.2 lítra af vatni á dag og borða ávexti og morgunmat.  Fæ mér bara einu sinni á diskinn og þetta kemur allt saman þó hægt sé.  En nú ætla ég að fara að taka mig á því að það eru enn nokkur kíló eftir og það er alveg að koma júní.  Þannig að það er farin að koma pressa á mig að gera betur ef ég ætla að standa við planið mitt.

Vona að ykkur gangi vel.

Ég er ekki enn komin með tölvu heima, þannig að ég er alveg ferleg að far inn á bloggið þessa dagana.

Enda er mikið að gera í vinnu, vorverkunum o.fl.

Gangi ykkur allt í haginn.

Kv. Djúsígella





Þetta gengur, en gengur hægt

5 05 2008

Góðan daginn, loksins er farið að koma betra veður, vor í lofti og fuglasöngurinn svo ljúfur á morgnana.  Ég er að reyna að taka mig á og er að horfa rosalega mikið inn á við þessa dagana.  Ég hef ekki hugsað of vel út í mataræðið, en ég hef ekki drukkið neitt kók og borða eiginlega ekkert nammi.  Ef ég hef fengið mér eitthvað svoleiðis þá er það ís eða lakkrís.  Takmarkað sykurmagn.  Ég er mjög dugleg að drekka vatn og það hefur verið mjög misjafnt hvernig hefur gengið hjá mér að stunda hreyfingartímana heima vegna þess að það hefur farið mikil orka núna undanfarið í andlegu hliðina hjá mér.

Ég fór með vinkonum mínum aðeins í bæinn að skemmta okkur um helgina og það var mjög fínt. 

Áfram, stelpur þetta kemur allt með hækkandi sól…..

Kv. Djúsígella