Jæja það er komið sumar, sólin farin að skína, grasið orðið grænt og bara yndislegt veður. Ég er farin að nota hjólið mitt og við hjólum orðið alltaf í vinnuna og skólann, ég og synir mínir. Okkur finnst það alveg frábært og við förum líka stundum í hjólreiðatúra á kvöldin eða eftir vinnu.
Ég hef ekki verið dugleg að skrá það sem ég borða. En ég drekk alltaf amk.2 lítra af vatni á dag og borða ávexti og morgunmat. Fæ mér bara einu sinni á diskinn og þetta kemur allt saman þó hægt sé. En nú ætla ég að fara að taka mig á því að það eru enn nokkur kíló eftir og það er alveg að koma júní. Þannig að það er farin að koma pressa á mig að gera betur ef ég ætla að standa við planið mitt.
Vona að ykkur gangi vel.
Ég er ekki enn komin með tölvu heima, þannig að ég er alveg ferleg að far inn á bloggið þessa dagana.
Enda er mikið að gera í vinnu, vorverkunum o.fl.
Gangi ykkur allt í haginn.
Kv. Djúsígella
Æðislegt, það segir þú satt vorið er TÍMINN!
Gangi þér vel
Já þetta er frábær tími.
Gangi þér vel!