Erfiðir dagar núna

28 05 2008

Góðan og blessaðan daginn, það eru sko erfiðir dagar hjá mér núna.  Ég ákvað að prófa eitthvað hreinsidagaprógram frá Aloa Vera sem eru 9 dagar, mér finnst það geggjað erfitt.  Ég fæ svo mikinn höfuðverk.  En þetta stillir af magann og hreinsar líkamann innan frá. 

En mér finnst þetta ekkert spennandi, ég er á þriðja degi núna, en 2 fyrstu dagarnir eru erfiðastir er mér sagt.  Vinkonur mínar eru líka í þessu og það renna af þeim kílóin, en ekki hjá mér :-(    Meira að segja þegar ég byrjaði hafði ég aðeins bætt á mig og þarf ég að skrá það samviskusamlega inn.  En ég veit ekki hvort ég held þennan kúr út.  Held að mér henti bara að gera áfram eins og ég hef verið að gera.  Hreyfingarprógram Ágústu Johnson og svo huga að mataræðinu með DDV bak við eyrað.  Í þokkabót þá er ég eitthvað voðalega lítil í mér þessa dagana, en það kemur allt með  tímanum.

Vona að ykkur gangi vel, bestu kveðjur!! Djúsígella


Actions

Information

3 responses

28 05 2008
Sigga Júlla /Bláklukkan

Það er einmitt svo misjafnt hvað hentar fólki, held þú vitir nú alveg hvað hentar þér….;) Gangi þér vel.

8 06 2008
Aðalheiður

lítill heimur ljúfur hlýr…
Takk fyrir djammið í gær góða,
vonandi verða þau fleirri.
Kveðja fullagrannkonan Heiða

10 06 2008
Dídí

Já, mismunandi hlutir henta mismunandi fólki! Það er bara þannig. :) Gangi þér vel skvís.

Skrá ummæli