Hæ hæ, í sól og sumaryl !!!! Vá hvað veðrið er búið að vera yndislegt síðustu daga. Ég er sko búin að njóta blíðunnar í botn, fara í sund og fara í fjöruferð og og og…..
Svo var ég auðvitað að byrja í nýrri vinnu og þetta tekur allt sinn tíma og í nógu að snúast.
TAKK ÆÐISLEGA FYRIR KOMMENTIN!! ÞIÐ ERUÐ ALVEG FRÁBÆRAR!!!!
Eins og ég hef sagt áður þá er þetta svo hvetjandi að vita af ykkur þarna úti og vita að þið eruð að fylgjast með mér, TAKK, TAKK…. Alltaf gott að fá svona ábendingar. Ég skal reyna eins og ég get að bæta mig, en stundum er maður í einhverjum skítareddingum. En annars langar mig að spyrja,, má maður ekki fá sér hrísgrjón á hverjum degi sem extra?? eða hvað, er það bara skipt út fyrir ávöxt?? Ég hélt að ég mætti það.
En þá er komið að því að gera grein fyrir átinu síðustu daga.
Sunnudagurinn 8.júlí
MM = R. brauð með osti + 1 tsk sulta, 1 tsk ólívuolía, appelsína + vatn
HM = 85 g kjúklingur, + blandað grænmeti og sallat, smá sósa m/majonsesi + hvítlauksdufti /2 tsk. 1 ristuð brauðsneið með smyrju og hvítlauksdufti, vatn að drekka.
Miðdegishressing = pera + ís í boxi (:-(
KM= Borðaði á Hafinu Bláa, fiskiþrenna, lítil kartafla, grænmeti (kláraði svo grænmetisskammtinn minn eftir að ég kom heim.) Vatn og aftur vatn.
Mánudagurinn 9.júlí
MM = Ristað brauð með osti, epli, vatn.
1 kaffibolli + vatn + appelsína milli mála
HM = Skyr.is vanillu, grænmeti, brauð með smyrju, gúrku og tómötum + VATN
KM = lasagne, hrísgrjón og 1 lítið snittubrauð (var boðin í mat, skammtaði mér lítið á diskinn) + 400 g grænmeti.
VATN + pera
Vona að þetta sé nokkurn veginn í lagi. En ég er ekki búin að prenta ennþá út skráningarblaðið en það er vigtun á morgun og það verður spennandi að sjá hvað gerist. Ég ætla að muna eftir að taka blöð á morgun.
Gangi ykkur vel og ég kíki á ykkur.
Kv. Djúsígella